Starfsemi

Tindar verðbréf eru verðbréfafyrirtæki sem hefur verið starfrækt frá árinu 2001 og starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Samfara breyttu eignarhaldi tók félagið upp núverandi nafn í desember 2009. Tveir stærstu hluthafar Tinda eru Teton ehf. og Títan fjárfestingarfélag ehf.

Starfsemi félagsins heyrir meðal annars undir lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 og lög um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007. Starfsemi félagsins er starfsleyfisskyld og fékk félagið starfsleyfi 20. júní árið 2001 sem verðbréfafyrirtæki. Félagið sætir eftirliti Fjármálaeftirlitsins samkvæmt 8. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998 og lýtur íslenskum lögum í starfsemi sinni að öðru...


Um Tinda

Helstu eignir fyrirtækja eins og Tinda eru starfsfólkið, eigið féð og orðsporið.  Við vitum að til þess að ná árangri þurfum við starfsfólk sem sýnir hollustu og hefur hæfileika, þekkingu og frumkvæði. Tindar munu beita sér fyrir heiðarlegum starfsháttum og góðu viðskiptasiðferði.

Tindar munu ekki skorast undan þeirri ábyrgð að byggja upp íslenskan fjármálamarkað á tryggum undirstöðum.  Annað af tveimur meginverkefnum íslenskra fjármálafyrirtækja er að endurvinna traust almennings á fjármálakerfinu og hitt er að endurvinna traust íslensks fjármálamarkaðar gagnvart erlendum aðilum.  Við munum byggja Tinda upp á heilbrigðan og skynsaman hátt.  Félagið mun vaxa af varfærni og í samræmi við þau verkefni sem félagið tekur að sér.


Flýtileiðir


Skipta um leturstærð


Skipta um tungumál


Leit



Haus - Reykjavík